1. |
Væntumþykjast
02:04
|
|||
Ástfangnir,
við gætum allt eins verið
ástfangnir.
|
||||
2. |
Guðlast
03:38
|
|||
Er það sjálfhverft
að nota einhvern
til að geta staðfest
að ég finni til?
Er þetta guðlast?
Að finna aldrei neitt
en samt að elskast?
Að finna aldrei samastað
og kasta mér á hvern sem er
sem gengur bara framhjá mér.
Ég geng fram af mér.
Er þetta guðlast?
Hef enga hugmynd
hvernig mér mun farnast
því ég er búinn að gleyma
hvernig ég á að haga mér,
kemst engan veginn hjá því.
Ég er háður þér
eins og áður fyrr.
Er það sjálfsagt
að ég geri ekkert
annað en að hamast
við að finna til?
Sýndu mér miskun,
ég á engan annan sem komið er,
vertu aðeins lengur hér hjá mér,
ekki fara strax.
Er þetta guðlast?
Veit ekki alveg hverju ég á að trúa
eða hvernig ég á að athafnast,
veit heldur ekki hvort ég sé að ljúga
eða hverjum ég er að ljúga að.
|
||||
3. |
Kærkominn
03:25
|
|||
Viltu ekki vera með einhverjum
sem er aðeins meira fullorðinn?
Væri ekki betra að sofa hjá
einhverjum sem er ekki
nýorðinn sjálfráða?
Við leiðumst ekki á almannafæri
af ótta við að verða áreittir,
við látum eins og ekkert væri,
við lítum aldrei við.
Viltu ekki vera með einhverjum
sem virðist meira fullkominn?
Eða viltu kannski vera með einhverjum
sem er ekkert að eltast við fullkomnun?
Viltu ekki vera með einhverjum
sem er þér meira kærkominn?
|
||||
4. |
Heimleiðis
02:56
|
|||
Með eitur í hausnum,
með sviða í nefinu
ég fer útaf staðnum
og held heimleiðis.
Með ástina á heilanum
ég verð fyrir vonbrigðum,
gefst upp á djamminu
og held heimleiðis.
Með niðinn í vindinum
syngjandi í eyrunum,
ég slekk á símanum
og held heimleiðis.
Með Esjuna í bakgrunni,
ég fjarlægist miðbæinn,
sest út við fjöruna
og doka aðeins við.
Frá Skerjafirði,
inn eftir Fossvogi
og upp eftir Breiðholti,
ég held heimleiðis.
|
Streaming and Download help
If you like Torfi Tómasson, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp